Snilld, ferðalag, ferðafélagar, kínverskir herbergisfélagar, sjáfboðaliðar, sætir brasilíubúar, Keflavík, Köben, Róm, Belluno, Limana, lest, stigaferðir með farangri, snilld, 206 myndir, frábær fjölskilda, 3 ný lítil ítölsk frændsystkini, sérherbergi, svalir, sérbaðherbergi, hornbaðkar, pasta, mozarella, gelato og ég gæti haldið áfram.
 |
| Leifsstöð, íslandsskvízur |
Seinustu 3 daga hef ég verið á ferðalagi í næstum 20 klst. Snilld. Samt ekki. AFS eru ekki mjög svefnvæn samtök. Vorkenni mér samt ekki mikið, Nýjasjálands krakkarnir ferðuðust í 40 tíma bara til Rómar.
 |
| Sjáið konuna á bakvið |
Almennur fróðleikur:
Ítalar loka aldrei hurðum: Satt
Ítalar ganga aldrei um á tánum: Ósatt
Pasta er bara pasta: Satt/ósatt, fer eftir hvern er spurt
 |
| DK |
 |
| Sófinn góði |
 |
| Ferðafélagarnir |
Áttum smá quotity time með kínversku stelpunum sem voru með okkur í herbergi, held að samræðurnar við þær hafi verið lang mesta menningarsjokkið. Skemmtilegur misskilningur um hvað þær gerðu í frítíma sínum (sem er af mjööög skornum skammti) þegar við urðum áhugasamar um það hvað þeim þætti gaman að "surfa". En eftir að þær lofsungu "surfið" spurðum við hvaða strendur væru þarna til að stunda það kom í ljós að þær höfðu verið að tala um að "surf the internet". Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið. Ekta kínverskt.
 |
| HEHE |
 |
| xxx |
 |
| Rokkað í DK |
 |
| Snilld á flugvelli í Roma |
 |
| Rútusnilld |
Eftir endalausa lestarferð, hlaup upp og niður stiga með allavega 20 kg af farangri í 3 töskum í hvorri hendi tvisvar sinnum hitti ég litlu sætu fjölskilduna mína. Já ég er sko áberandi lang stærst. En það er bara fyndið. Þau eru mjög fyndin. Hlægja mikið og lofa mjög góðu. Þetta er snilld. Herbergið mitt er snilld og ég set mögulega myndir af því næst. Snilld.
 |
| Maturinn góði |
 |
| Inspired by China herbergið |
 |
| Skiptinemar |
 |
| Like á rómarveldið |
 |
| Þessi pósar ótt og títt |
 |
| Verkefnið fína |
Annars vildi ég bara koma á framfæri að allt er buono. Ég er komin á áfangastað og nú förum við bara að keyra ítölskuna í gang.
 |
| Funny, Til hamingju með afmælið frá öllum löndum |
 |
| Íslenskar og suður amerískar |
 |
| Leikir |
 |
| Þessir hattar vöktu mikla lukku |
 |
| Nývöknuð var þema ferðalagsins |
 |
| Skandilnavía |
 |
| Mcdo |
 |
| Lestin, fyrir stigaátökin |
 |
| Brazilíu vinirnir |
Treysti á að fólk commenti að vild.
Ciao!
Alma Dóra