Núna er komið að því að pakka niður þessum yndislegu 10 mánuðum í 23 kg ferðatösku (+ 3x20 kg pakka sem ég er búin að senda heim) og snúa aftur. Og ég mun gera það með kökk í hálsinum og söknuð í hjartanu. Tíminn hefur gjörsamlega flogið og ég er búin að eiga eitthvað það frábærasta en líka erfiðasta ár lífs míns hérna í Belluno. Ég hlakka samt líka til að koma heim og knúsa alla.
Hérna eru 2 videoblogg, annað sem ég gerði kvöldið áður en ég kom út og hitt frá því í kvöld, seinasta kvöldinu í Belluno.
Skiptinemaár er ekki bara ár í lífi þínu heldur nýtt líf í einu ári (vá, þetta hljómar betur á hvaða tungumáli sem er). Enjoy.
Takk fyrir mig
Baci e abbracci!
Alma Dóra Ríkarðsdóttir