Það tekur rúma 4 tíma að fara með lest frá Belluno til Bologna. Við Elena fórum þangað um helgina að hitta háskólavini hennar sem búa þar. Það var snilld. Bologna er ekkert smá falleg borg, mikið af fallegum arkítektúr og stöðum til að skoða, þó við höfum bara verið þar í tæpan sólarhring. Við skoðuðum m.a. kirkjuna sem páfinn stoppaði byggingu á því hún var að verða stærri en kirkjan í Vaticaninu. Snilld.
Annars gengur allt vel hér í Belluno, allt farið að detta í smá rútínu og ítalskan, tja hún kemur hægt, hægt og rólega, en kemur þó! Allt annað gengur vel, skólinn er fínn, fjölskildan er frábært, og maturinn, ó maturinn er buonissimo!
Skil ennþá mjög lítið hvað kennararnir segja, en þeir reyna mjög oft að gefa mér einhver fáránleg heimaverkefni. Trúarbragðafræði kennarinn hefur gefið mér 2 heimaverkefni í 2 tímum sem ég hef farið í hjá henni. Í seinna skiptið reyndi hún að útskýra með því að taka orðabókina mína og þýða stikkorð og setja á töfluna. Það sem hún skrifaði var:
Hönnun - Teikning - Hugi
Ég eyddi restinni af tímanum í að útskýra að þetta meikaði ekki sense.
Núna er ég búin að vera hérna í 1 mánuð, og ég trúi ekki hvað tíminn líður hratt. 6 vikna námskeiðið nálgast, og það svo óheppilega lenti á afmælinu mínu. En það verður ágætt, eða þú veist. Fjölskildan mín ætlar samt að halda uppá það eftir að ég kem heim! Þau eru yndisleg!
Svo fékk ég pakkann minn um daginn! Takk mamma :) Þar voru rúmlega öll fötin mín, ásamt öðru stússi, og naaammi, og harðfisk, sem fékk allt í góðan jarðveg hjá ítölunum. Snilld.
Svo er ég byrjuð í kór! Sem er samt meira svona Glee dæmi, en þú veist, snilld.
Og núna man ég ekki meir, en það er mikil búið að gerast og alltaf eitthvað nýtt sem maður er að upplifa, og þó ég sakni allra vil ég meina að ég sé ekki komin með heimþrá, ennþá.
Þá ætla ég bara að kveðja úr mínu góða yfirlæti hér í Ítalíu, og ég vil fá comment! Ciao belli!
