Classic skiptinemablogg

Það er erfiðast að bíða, en ég er 17 ára þangað til 27. október. Ég heiti Alma Dóra Ríkarðsdóttir og ég er á leiðinni til Ítalíu sem skiptinemi 9. september. Hér getur þú fylgst með. Snilld.

Tuesday, November 15, 2011

Það er ástæða fyrir að þeir kalla skökku skriftina italic...

Halló Písaaaa!

Túristi vol.1
 Þá er túristalegustu helgi lífs míns lokið, og ekki hef ég einungis toppað mína menningarlegu tilveru heldur get ég krossað útaf bucket listanum að sjá skakka turninn í Písa! Og það var sko þess virði að sitja 5 tíma í lest báðar leiðir, því þetta er eitthvað sem allir verða að sjá.

Túristi vol.2
Við lögðum af stað um hádegi frá lestarstöðinni í Belluno, ég, Jingkun frá Kína, Monserrat frá Mexico og ítölsku foreldrar Jingkun, sem reyndust vera þolinmóðasta fólk sem ég hef nokkurn tíman kynnst... og það er mjög hentugt, þar sem það er ekki auðveldasta verkefni í heimi að kenna kínverja ítölsku.

Í fína herberginu okkar!
Ótrúlegasta sem ég hef lent í hérna í Ítalíu var að hitta Sólveigu á lestarpallinum þegar við vorum að skipta um lest. Mest random ferðarinnar, enda vorum við báðar ekkert smá hissa að hafa akkúrat verið á sama stað á sama tíma, og hvorug okkar vissi að hin væri að ferðast þessa helgi.

Ótrúlegasta tilviljun ársins  
Þegar við komum svo til Písa fórum við á hótelið sem var við hliðina á turninum, kirkjunni og öllum túristabúðunum, sem var mjög hentugt. Þar sem ég hafði miklar væntingar gagnvart því að Jingkun myndi fara á kostum eins og kínverskum túristum er einum lagið, var ég í sjokki þegar það reyndist vera Monserrat sem var með eindæmum túristi ferðarinnar = það voru teknar "túrista-skakkaturns-myndir"við öll tækifæri... líka eftir að það var orðið of dimmt til að sjá turninn í bakgrunni.

Sólheimabros í skakka turninum
(Kína) Túristi vol.3
Leyfa sér smá
Svo fórum við líka að skoða háskólann, ánna, Picasso safnið og fleira merkilegt. Písa er ekkert smá falleg borg, þó hún sé ekki stór. Svo var auðvitað verslað smá, keypt bleik pollastígvél, og fleira nauðsynlegt (enda rignir í Belluno örugglega 200 daga á ári). Svo var þrætt alla túrista standanna, og klifrað upp sjálfann turninn, og trúið mér, hann er stærri en hann sýnist! Sbr. harðsperrur löppum eftir svona 1000 þrep, en ég sé ekki eftir þeima rip-off 15 evrum sem það kostaði!

Túristi vol.4
& Monserrat sæta í turninum góða
Písa var algjör snilld, allt gengur voða vel og ítalskan er loksins farin að láta sjá sig. Næst þegar ég fer í menningarferð til Písa komið þið öll með.

Nú eru rúmlega tveir mánuðir liðnir síðan ég lenti á Ítalíu. Þetta er búin að vera ótrúleg reynsla og þó ég sakni alls og allra þá hlakka ég til næstu 8 mánaða og vona að þeir verði jafn frábærir og þessir tveir. Ég get samt ekki beðið eftir að fá að knúsa alla að ári liðnu.

Elsku Písa
L´Italia
Love you more,
Alma Dóra Ríkarðsdóttir

Tuesday, November 1, 2011

La mia vita in Italia

Á 6 vikna námskeiðinu varð ég gjörsamlega ástfangin af AFS...

6 week camp!
Hveitislagur!
Belluno skvísur
Ég hefði aldrei ímyndað mér að ég yrði svona glöð að hitta hinar stelpurnar, sem ég hafði í rauninni bara hitt tvisvar sinnum áður, eða að ég yrði virkilega svona sorgmædd að þurfa að kveðja krakkana, sem ég hafði í rauninni bara þekkt í 4 daga. Það er ótrúlegt hvað við eigum mikið sameiginlegt, sama hvaðan við komum, vegna þess að við erum í rauninni öll að ganga í gegnum það sama og það einhvernveginn gerir okkur ósjálfrátt að vinum, þó að við þekkjumst ekki vel. En það er það fallega við þetta allt saman.

Íslensku í ham

Ég held að ég hafi aldrei gert jafn margar málfræðilegar villur og eftir ég hitti Sólveigu og Sigurrós í rútunni á fimmtudaginn, þá erum við að tala um nýyrði eins og "þetta er freyðivatn", "hann er ekki með neina mannslega hæfileika" og "photoboothið mitt er sko búið að fyllast af phótum".


Sætu íslensku 
LITAÞEMAÐ!

Eftir á hyggja var ég ekkert smá ánægð með að hafa fengið að eiga afmæli á námskeiðinu. Ég hef ekki tölu á því hversu oft var sungið fyrir mig afmælissönginn, og um kvöldið fékk ég köku, afmælissönginn á allavega 15 tungumálum og vasaljós frá sjálfboðaliðunum sem á að "lýsa mér veginn í gegnum ferðina mína" (nei afs eru ekkert corny samtök neitt haha).

Afmælisbarnið!
Siamo molto romantiche
Þó atriðið okkar íslensku stelpnanna hafi ekki verið uppá marga fiska þá áttu Tailensku krakkarnir hæfileikakeppnina seinasta kvöldið gjörsamlega! Hef aldrei verið jafn hissa á ævi minni og þegar þau byrjuðu að dansa og pósa við Tailenskt popp lag? Það var frábært, hahaha, eitthvað sem ég hefði aldrei búist við!

Tailenska pósan!
Pósa ferðarinnar


Trallala
Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel, og hlegið jafn mikið og þessa fjóra daga. Eða eignast jafn marga frábæra vini. Það er ótrúlegt hvað mér þykir vænt um alla þessa krakka og ég er strax byrjuð að sakna þeirra! Það var mikið talað, hlegið og sungið, og svo knúsast og grátið í rútunni á leiðinni heim! Trúi ekki að við séum ekki að fara að hittast fyrr en í júní! En það verða sko fagnaðarfundir!

Sigurrós sæta

WOO

Íslandsplaggatið góða

WOO! (kaldhæðnispósan)
<3 Eugenio
meira aaaw
Þar sem þetta var löng helgi fór fjölskildan mín í ferðalag á meðan ég var á námskeiðinu. Sem gerði mig að munaðarleisingja í 2 daga. En þá fékk ég að vera hjá bráðbrigðafjölskildu í Cortina, Calalzo! Sem er c.a. 1,5 klst í burtu frá Belluno. Það er ekkert smá fallegur staður og fjölskildan var frábær og ég fékk að prufa að vera í aðeins öðru umhverfi sem var snilld!

Sigmund Fraud!

Ég og sæti Fraud

YAY

Cortina
Ég held að þessi vika hafi látið mig kunna að meta frábæru fjölskilduna mína jafnvel enn betur! Og ég var ekkert smá ánægð að koma heim og hitta þau. Núna tekur við bara skólasnilld og læti. Svo fór ég á fyrstu blakæfinguna mína í seinustu viku! Þar stóð ég mig með eindæmum illa, og uppskar marbletti upp alla handleggina, en ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel! Þar að leiðandi mun ég að öllum líkindum halda áfram að gera verslunarskóla íþróttakennarana stollta og iðka blakið af krafti!


Il mio piú belli saluti per tutti gli islandese
Voi mi manchi tanto

BÆÆ