Classic skiptinemablogg

Það er erfiðast að bíða, en ég er 17 ára þangað til 27. október. Ég heiti Alma Dóra Ríkarðsdóttir og ég er á leiðinni til Ítalíu sem skiptinemi 9. september. Hér getur þú fylgst með. Snilld.

Wednesday, August 24, 2011

Fjölskylda og ferðaplön

15 dagar í dag

Tíminn líður hratt, og hægt. Nú tekur við bara vinna til 9.sept þegar ég og Ítalíu stelpurnar föngulegu höldum á stað á vit avventure in Italia. Sem verður snilld. Þessir undanförnu skóla-frídagar hafa að mestu farið í svefn, og vinnu, og undirbúning. 8 vaktir eftir í Sporthúsinu og 3 í Kringlunni. 

Engin vinna og enginn bíll í 10 mánuði. Vá.

Allavega. Þá hljómar flugplanið einhvernvegin svona.


KEF - Keflavik
9.9.2011
07:45
CPH - Copenhagen
9.9.2011
12:45
Departure
CPH - Copenhagen
9.9.2011
16:00
FCO - Rome - Fiumicino
9.9.2011
18:30
Departure












Við lendum í Róm og förum fyrst á komunámskeið. Ef ég hef skilið þetta rétt. Hittum þar alla hina Ítalíu skiptinemana, svo eigum við mislangt ferðalag fyrir höndum. Mitt gæti held ég varla verið lengra þar sem ég er alveg uppi á toppnum í litlum bæ sem heitir Limana. En eins og host-mamma mín orðaði það: "We live in Limana but our life is in Belluno". Belluno er semsagt stærri bær sem Limana er rétt fyrir utan. Þar mun ég að öllum líkindum fara í skóla eins og systur mína tvær.

Fjölskyldan mín hljómar mjög vel.

Hún samanstendur af Massimo Caviola og Beatrice Fregona sem eiga tvær dætur, Elena (93) og Camilla (97). Massimo og Beatrice (gætu þau heitið ítalskari nöfnum?) eru á svipuðum aldri og foreldrar mínir og vinna bæði mjög mikið. Massimo er I.T managing director hjá fyrirtæki sem framleiðir gler og Beatrice vinnur hjá fjölskildufyrirtækinu sem framleiðir plast hluti. Þeim finnst gaman að ferðast og lesa.

Þegar þau eru í lengra en tveggja daga fríi ferðast þau um Evrópu. 

Ég hef mjög góða tilfiningu fyrir þessu öllu, sérstaklega ferðalögunum, og sérherberginu, sá kross á umsókninni gladdi mig líklega mest.

Un bacio, Alma

No comments:

Post a Comment

Til að commenta þarf að velja "anonymous" í Comment as. Allir að commenta!