Classic skiptinemablogg

Það er erfiðast að bíða, en ég er 17 ára þangað til 27. október. Ég heiti Alma Dóra Ríkarðsdóttir og ég er á leiðinni til Ítalíu sem skiptinemi 9. september. Hér getur þú fylgst með. Snilld.

Tuesday, November 15, 2011

Það er ástæða fyrir að þeir kalla skökku skriftina italic...

Halló Písaaaa!

Túristi vol.1
 Þá er túristalegustu helgi lífs míns lokið, og ekki hef ég einungis toppað mína menningarlegu tilveru heldur get ég krossað útaf bucket listanum að sjá skakka turninn í Písa! Og það var sko þess virði að sitja 5 tíma í lest báðar leiðir, því þetta er eitthvað sem allir verða að sjá.

Túristi vol.2
Við lögðum af stað um hádegi frá lestarstöðinni í Belluno, ég, Jingkun frá Kína, Monserrat frá Mexico og ítölsku foreldrar Jingkun, sem reyndust vera þolinmóðasta fólk sem ég hef nokkurn tíman kynnst... og það er mjög hentugt, þar sem það er ekki auðveldasta verkefni í heimi að kenna kínverja ítölsku.

Í fína herberginu okkar!
Ótrúlegasta sem ég hef lent í hérna í Ítalíu var að hitta Sólveigu á lestarpallinum þegar við vorum að skipta um lest. Mest random ferðarinnar, enda vorum við báðar ekkert smá hissa að hafa akkúrat verið á sama stað á sama tíma, og hvorug okkar vissi að hin væri að ferðast þessa helgi.

Ótrúlegasta tilviljun ársins  
Þegar við komum svo til Písa fórum við á hótelið sem var við hliðina á turninum, kirkjunni og öllum túristabúðunum, sem var mjög hentugt. Þar sem ég hafði miklar væntingar gagnvart því að Jingkun myndi fara á kostum eins og kínverskum túristum er einum lagið, var ég í sjokki þegar það reyndist vera Monserrat sem var með eindæmum túristi ferðarinnar = það voru teknar "túrista-skakkaturns-myndir"við öll tækifæri... líka eftir að það var orðið of dimmt til að sjá turninn í bakgrunni.

Sólheimabros í skakka turninum
(Kína) Túristi vol.3
Leyfa sér smá
Svo fórum við líka að skoða háskólann, ánna, Picasso safnið og fleira merkilegt. Písa er ekkert smá falleg borg, þó hún sé ekki stór. Svo var auðvitað verslað smá, keypt bleik pollastígvél, og fleira nauðsynlegt (enda rignir í Belluno örugglega 200 daga á ári). Svo var þrætt alla túrista standanna, og klifrað upp sjálfann turninn, og trúið mér, hann er stærri en hann sýnist! Sbr. harðsperrur löppum eftir svona 1000 þrep, en ég sé ekki eftir þeima rip-off 15 evrum sem það kostaði!

Túristi vol.4
& Monserrat sæta í turninum góða
Písa var algjör snilld, allt gengur voða vel og ítalskan er loksins farin að láta sjá sig. Næst þegar ég fer í menningarferð til Písa komið þið öll með.

Nú eru rúmlega tveir mánuðir liðnir síðan ég lenti á Ítalíu. Þetta er búin að vera ótrúleg reynsla og þó ég sakni alls og allra þá hlakka ég til næstu 8 mánaða og vona að þeir verði jafn frábærir og þessir tveir. Ég get samt ekki beðið eftir að fá að knúsa alla að ári liðnu.

Elsku Písa
L´Italia
Love you more,
Alma Dóra Ríkarðsdóttir

6 comments:

  1. FLOTTUST
    Frábærar myndir ljúf, gott að þú sért að túristast, my kind of a girl, ef ég hefði verið með í för hefði ég mætt með sögulegar staðreyndir sem ég hefði grafið upp en það bíður betri tíma.

    love you most

    ReplyDelete
  2. Mikið rosalega er ég sátt með túristamyndirnar :D En vá hvað það er snilldargaman hjá þér og við tökum skype deit einhvern tíman á næstunni!

    p.s. Þú ert svo sæt!! <3
    kv Þórdís

    ReplyDelete
  3. Frábært að heyra þessa ferðasögu og mjög flottar myndir:) Við gleðjumst öll yfir hversu frábærlega gengur hjá þér....en hlökkum til að knúsa þig í tætlur eftir 8 mánuði:) Njóttu alls í botn, ástarkveðjur að heiman!

    ReplyDelete
  4. fýla túristamyndirnar í rusl og drasl elskuleg... ég sé líka að ingveldar-teamsnape-blaktímarnir hafa án efa gert mikið gagn í þessu klifri þínu upp tröppurnar (btw fékk 9,3 í kúpertestinu og 7 í armbeygjuprófi hér á klakanum, HVARRÍGANGEEEHH?? #íþróttaarnaaðmeikaþað)

    love you 4 !

    ReplyDelete
  5. lol, kv Arna á að vera fyrir ofan líka

    ReplyDelete
  6. Það er svo gaman að sjá og lesa um það sem á daga þína drífur í pizza landinu mín kæra! Frábærar myndir og sérlega hlýnaði mér nú um hjartarætur að sjá flottu gráu peysuna á þeirri fyrstu ;) Þú ert nú heldur betur gædd mörgum og miklum hæfileikum mín kæra og alltaf eru fleiri og fleiri að koma í ljós - nú hefur túristamyndataka klárlega bæst á listann! :) Ristastórt knús frá big sys :)

    ReplyDelete

Til að commenta þarf að velja "anonymous" í Comment as. Allir að commenta!