Classic skiptinemablogg

Það er erfiðast að bíða, en ég er 17 ára þangað til 27. október. Ég heiti Alma Dóra Ríkarðsdóttir og ég er á leiðinni til Ítalíu sem skiptinemi 9. september. Hér getur þú fylgst með. Snilld.

Tuesday, November 1, 2011

La mia vita in Italia

Á 6 vikna námskeiðinu varð ég gjörsamlega ástfangin af AFS...

6 week camp!
Hveitislagur!
Belluno skvísur
Ég hefði aldrei ímyndað mér að ég yrði svona glöð að hitta hinar stelpurnar, sem ég hafði í rauninni bara hitt tvisvar sinnum áður, eða að ég yrði virkilega svona sorgmædd að þurfa að kveðja krakkana, sem ég hafði í rauninni bara þekkt í 4 daga. Það er ótrúlegt hvað við eigum mikið sameiginlegt, sama hvaðan við komum, vegna þess að við erum í rauninni öll að ganga í gegnum það sama og það einhvernveginn gerir okkur ósjálfrátt að vinum, þó að við þekkjumst ekki vel. En það er það fallega við þetta allt saman.

Íslensku í ham

Ég held að ég hafi aldrei gert jafn margar málfræðilegar villur og eftir ég hitti Sólveigu og Sigurrós í rútunni á fimmtudaginn, þá erum við að tala um nýyrði eins og "þetta er freyðivatn", "hann er ekki með neina mannslega hæfileika" og "photoboothið mitt er sko búið að fyllast af phótum".


Sætu íslensku 
LITAÞEMAÐ!

Eftir á hyggja var ég ekkert smá ánægð með að hafa fengið að eiga afmæli á námskeiðinu. Ég hef ekki tölu á því hversu oft var sungið fyrir mig afmælissönginn, og um kvöldið fékk ég köku, afmælissönginn á allavega 15 tungumálum og vasaljós frá sjálfboðaliðunum sem á að "lýsa mér veginn í gegnum ferðina mína" (nei afs eru ekkert corny samtök neitt haha).

Afmælisbarnið!
Siamo molto romantiche
Þó atriðið okkar íslensku stelpnanna hafi ekki verið uppá marga fiska þá áttu Tailensku krakkarnir hæfileikakeppnina seinasta kvöldið gjörsamlega! Hef aldrei verið jafn hissa á ævi minni og þegar þau byrjuðu að dansa og pósa við Tailenskt popp lag? Það var frábært, hahaha, eitthvað sem ég hefði aldrei búist við!

Tailenska pósan!
Pósa ferðarinnar


Trallala
Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel, og hlegið jafn mikið og þessa fjóra daga. Eða eignast jafn marga frábæra vini. Það er ótrúlegt hvað mér þykir vænt um alla þessa krakka og ég er strax byrjuð að sakna þeirra! Það var mikið talað, hlegið og sungið, og svo knúsast og grátið í rútunni á leiðinni heim! Trúi ekki að við séum ekki að fara að hittast fyrr en í júní! En það verða sko fagnaðarfundir!

Sigurrós sæta

WOO

Íslandsplaggatið góða

WOO! (kaldhæðnispósan)
<3 Eugenio
meira aaaw
Þar sem þetta var löng helgi fór fjölskildan mín í ferðalag á meðan ég var á námskeiðinu. Sem gerði mig að munaðarleisingja í 2 daga. En þá fékk ég að vera hjá bráðbrigðafjölskildu í Cortina, Calalzo! Sem er c.a. 1,5 klst í burtu frá Belluno. Það er ekkert smá fallegur staður og fjölskildan var frábær og ég fékk að prufa að vera í aðeins öðru umhverfi sem var snilld!

Sigmund Fraud!

Ég og sæti Fraud

YAY

Cortina
Ég held að þessi vika hafi látið mig kunna að meta frábæru fjölskilduna mína jafnvel enn betur! Og ég var ekkert smá ánægð að koma heim og hitta þau. Núna tekur við bara skólasnilld og læti. Svo fór ég á fyrstu blakæfinguna mína í seinustu viku! Þar stóð ég mig með eindæmum illa, og uppskar marbletti upp alla handleggina, en ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel! Þar að leiðandi mun ég að öllum líkindum halda áfram að gera verslunarskóla íþróttakennarana stollta og iðka blakið af krafti!


Il mio piú belli saluti per tutti gli islandese
Voi mi manchi tanto

BÆÆ

5 comments:

  1. Ég hefði ælt hefði ég fengið þetta vasaljós og þessa línu með.
    Ég hef engin orð varðandi blakið.
    Gott að allt er gott elsku barn.

    love

    ReplyDelete
  2. Jeij, en gaman! Gott þú skemmtir þér ;)
    Hafðu það áfram gott elsku :)

    ReplyDelete
  3. Frábært að heyra hvað þetta námskeið var flott...æði að eiga afmæli þar og græða svona meiriháttar flotta upplifun;) Fékk nokkrar myndir lánaðar til að setja á feisið. ástarkveðja, mamma:)

    ReplyDelete
  4. Þú ert glaðasta manneskjan.. en gott þú skemmtir þér svona vel snúlla hefði vel viljað samt geta knusað þig á 18 ara afmælinu en sendi þráðlausan vona að þú fékkst hann hann fór í flöskuskeiti 2 dögum fyrr svo ;*)
    -Þórdís

    ReplyDelete
  5. Ok ég hef engin orð varðandi fyrsta paragraphið þitt, held að þú hafir væmnast og heimspekilegast sinnum þúsund við að fara þarna út! En það er það fallega við þetta allt saman.

    Orð mín varðandi blakið: BLAK TEAM SNAPE SNILLD INGVELDUR OLÉ !!!

    Orð mín varðandi WOO: WOOOOOOOOO (sagt á óviðeigandi hátt)!!

    Love youuuuuuuuu

    Arna

    ReplyDelete

Til að commenta þarf að velja "anonymous" í Comment as. Allir að commenta!