Bloggleysi gengur ekki, sérstaklega í þessu mikla bloggtrendi sem hefur tröllriðið öllu uppá síðkastið. Skiptinemablogg er besta afsökunin fyrir þáttöku í þessu mainstreami.
Annars er þetta blogg tileinkað
Gæðadögum í Bolzano
Ég held ég geti vel fullyrt að þetta hafi verið einhver sú mesta ævintýraferð lífs míns, en til að gera langa sögu stutta bauð hin frábæra Sigurrós mér að koma í heimsókn til sín yfir helgi í tilefni afmælissins hennar. Þar sem ég er mikill ævintýrafari var svarið að sjálfsögðu játandi. Ég áttaði mig hinsvegar ekki á að það þýddi 7 tímar af ferðalagi hjá þeirri líka áreiðanlegu og fyrirsjáanlegu dásemd sem lestarkerfið í Ítalíu er. Og þar að auki ferðaðist ég ein. En ég skemmti mér mjög vel. Þó ég hafi eytt mestum parti af ferðalaginu týnd.
En fyrir þá sem setja ekki nennis á löngu útgáfuna, þá er þetta það sem var skrifað í dagbókina mína:
Kæra dagbók,
Það gladdi mig fátt meira en þegar elsku Sigurrós bauð mér að koma í heimsókn til sín til Bolzano. Upprunalega hugmyndin var að ég myndi vera frá föstudegi til sunnudags. Svo kom babb í bátinn. Trenitalia þurfti að sjálfsögðu að vera með verkfall á sunnudeginum. En þar sem hostmamma mín er alveg frábær og AFS-ið í Belluno ekkert smá líbó, þá fékk ég að sleppa skóla á mánudaginn og vera þá frá fös - mán, SCORE!
Heyrðu þetta byrjaði líka svona heldur betur vel. Þó að ég hafi ímyndað mér að lestarferðin yrði skelfing, þá fór þessi alveg með það. Upprunalega planið sem ég hafði líka svona heiðarlega laggt á minnið var: kaupa nesti, vera mætt á lestarstöðina kl. 13.30, skipta um lest 2svar og vera mætt á Bolzano Bozen kl. 7. Nei. Það gekk ekki eftir. Frá fyrstu sekúndu var þetta ferðalag disaster (en ég meina what doesn´t kill you, makes you stronger, ha mamma?).
![]() |
| Blaðið hjálplega |
Það byrjaði á því að á lestarstöðinni í Belluno stóð á skjánum að mín lest væri næst að koma á palli 1. Svo heyrist í hátalarakerfinu að það sé önnur lest sem sé að koma á pall 1? Ég þakka guði fyrir að hafa kannast við eina stelpu sem var að bíða eftir þessarri lest og gat spurt hana hvort þetta væri rétt lest. "Ef þú ert að fara til Calalzo, já". Sem er alveg 100% í hina áttina. Svo fann hún lestarstarfsmann sem líka svona kurteisislega tilkynnti mér að lestin mín myndi ekki koma. Heldur myndi ég þurfa að taka rútu til Feltre (sbr. Hafnarfjörður, ef Belluno er miðbær Reykjavíkur).
Þegar ég kom til Feltre var lest að bíða á lestarteinunum. Það var hinsvegar ekki lestin sem ég hefði átt að taka í BL. Ég veit ekki hversu marga ég hafði spurt hvort þessi krummaskurðar stoppistöð sem ég átti að fara út á væri á planinu hjá þessarri lest þegar ég fann loksins starfsmann sem gat staðfest það. Eftir að hafa setið í lestinni í rúma tvo tíma með athygglina mína alla á óskýra hátalarakeftinu og öllum sjáanlegum skiltum til að fara sko alveg örugglega ekki framhjá mínu stoppi, kom góði lestarstarfsmaðurinn aftur, og bjargaði lífi mínu.
Hann sagði mér að við myndum að öllum líkindum ekki komast á staðinn sem ég var að fara á áður en næsta lest átti að fara, svo hann tók upp símann sinn og fann nýja leið fyrir mig. Takk góði maður! Þó hann hafi verið algjör lifesaver voru upplýsingarnar sem hann gaf mér ekki þær skírustu. Hann sagði mér að skrifa á blaðið mitt:
Castelfranco Veneto - 15.41 - 19.30 - Bassano - Trento.
Svo sagði hann mér að ég þyrfti að fara út á næstu stöð, sem hét akkúrat fyrsta nafninu á blaðinu (ráðgáta 1 leist, check!). Þegar þangað var komið tók við smá ráðaleysi og leit að einhverri lest sem væri að fara á stað 2 á blaðinu. Svo fann ég loksins lest sem hafði 2 af þrennu, aðra staðsetninguna sem endastöð, og tímasetningu nr. 2 einnig, svo ég veðjaði á að það væri hin eina sanna lest. Þá lestarferð sat ég róleg og beið eftir minni endastöð, en reynslan hafði kennt mér að auðveldast væri líklega að fylgjast bara með tímanum, sérstaklega þar sem í þessarri lest var ekkert hátalarakerfi.
Innskot: Það er kannski vert að minnast á það að Bolzano er í rauninni ekki svo langt frá Belluno, en þar sem það eru fjöll á milli þurfti ég að fara einhverja þá mestu krókaleið heims til að komast þangað. Viva Italia!
![]() |
| Markmiðið semsagt var að komast frá A til B. Bláa línan táknar sirka leiðina sem ég þurfti að fara, svona sirka. |
Þegar loksins kom að mínu endastoppi hafði ég smá tíma til að kaupa mér lestarnammi og koma mér í næstu lest áður en hún lagði af stað. En þarna var farið að dimma, og án hátalarakefisins, og með öllum ljósunum inní lestunum þá var í rauninni engin leið til að vita hvenær ég ætti að fara út (gæti samið heilt biturðar blogg um hversu pirrandi er að ferðast í strætóum og lestum eftir að það kemur myrkur, þar sem þeim finnst endilega ástæða til að lísa þá upp eins og jólatréið í disneylandi á sterum, jesús).
Aðeins áður en það var kominn tími á að ég ætti að fara út kemur inn svartur maður og sest á móti mér í lestinni. Eftir að hann hafði mjög óþægilega fylgst með mér alla lestarferðina heyrði hann tala í símann um að hann væri að fara til Trento. "SNILLD, ÉG ELTI HANN" var að sjálfsögðu mín fyrsta hugsun.
Svo var komið aðeins yfir þann tíma sem ég átti að vera mætt í Trento, en þá stendur maðurinn upp og tekur til dótið sitt, svo sé ég skilti sem stendur á "TRENTO" og hlaut þ.a.l. að vera hinn eini sanni lestarpallur. Ég meina hversu ótvíræð skilaboð. Aftur á móti þegar ég fer út og lestin yfirgefur pallinn sé ég að ég er í enhverjum krummaskurði rétt fyrir ofan borgina, ein, og næsta lest til alvöru Trento kemur eftir 2 tíma. Og það var skítkalt! Flott Alma!
Á þessum tímapunkti var ég það örvæntingarfull að þegar svarti maðurinn kom aftur upp stigann og spyr hvort ég væri týnd sagði ég hiklaust já. Sem betur fer var þetta ekkert smá fínn gaur! Hann fylgdi mér á strætóstoppistöðina og sagði mér hvaða strætó ég ætti að taka. Svo sagðist hann þurfa að fara og pikkaði í einhvern annar random mann og spurði hvort hann talaði ensku. Hann svaraði játandi, og þá skikkaði svarti maðurinn honum til að hjálpa mér.
Þarna er ég með random manni nr. 2 sem ætlaði að hjálpa mér á lestarstöðina. Staðreindin var, að ég var í rauninni í Trento, en ég hafði farið út 2 stoppistöðvum of snemma, eða semsagt 2 stoppistöðvum fyrir lokastoppið, sem var stóra lestarstöðin í Trento. Þegar ég kom inní strætóinn sat ég á móti random manni nr.2, en þar sem á þessum tímapunkti hafði ég engu að tapa og enga vitund um hverju ég var að leita að eða hvar ég ætti að fara út spurði ég manninn, sem var ekkert smá næs! Hann fór og spurði bílstjórann sem gaf mér nafnið á stoppistöðinni og sagði að ég ætti að fara út eftir ca. 10 min. Svo yfirgaf hann strætóinn. Þegar þarna var komið hafði ég ágæta hugmynd hvert ég ætti að fara. Aftur á móti þegar ég kom útúr strætónum var ég ein og ráðalaus, þar sem engin lestarstöð var í augnsýn.
En þá sá ég konu sem ég hafði heyrt í strætónum tala um lestarstöðina og elti hana. Gleðin í hjarta mínu þegar ég sá lestarstöðina verður ekki lýst með orðum. Þá var klukkutími í næstu lest til Bolzano. Svo ég sendi Sigurrós sms um að ég yrði klukkustund of sein. Svo fékk ég mér kaffi. Seinasta lestarferðin var farin með mikilli gleði í hjarta og miklum létti.
| Gleði, gleði, gleði! |
| Elsku sæta |
| BOZEEEEN |
Þegar komið var til Bozen tóku við mér Sigurrós og mamma hennar sem er nú bara hin ágætis kona. Fjölskildan hennar býr í stóru húsi, sem í fyrstu virðist endalaust. Og þar búa Sigurrós, mamma hennar og bróðir, og já 6 kettir! (Sem ég kvaddi ekki með miklum trega). Fyrsta kvöldið fór í spjall og snilld.
Seinni daginn vöknuðum við seint og tókum smá túr um hinn eina sanna BOZEN eftir það var bökuð með eindæmum fallega og vel heppnaða rise crispies köku. Hehm. Svo var haldið uppá afmælið hennar með pompi og pragt og fékk ég þar að hitta alla hennar helstu vini, og auðvitað hinn eina sanna super Mario.
Svo ég verði ekki dæmdur krimmi þá ætla ég að byrja á að segja að ég spurði Sigurrós fyrr um daginn hvar ég gæti keypt strætómiða, en hún sagði það ekki þurfa og kannaðist sko ekkert við miðakallana sem ég reyndi að segja henni frá.
En að sjálfsögðu voru þeir á vakt þetta kvöld og ég hef aldrei fengið jafn mikið panik og þegar þeir komu og báðu vinsamlegast um að fá að sjá miða, ég gjörsamlega fraus. En þökk sé manns sem stimplaði miðann sinn tvisvar (eða á einhvern magnaðan hátt reddaði málunum/talaði okkur útúr þessu) og ákvörðun okkar að tala bara íslensku, og auðvitað guðs mildi komumst við útúr strætónum óáreyttar.
Jesús, sjaldan hef ég verið jafn hrædd! Fólk er að fá sjúkar sektir og rugl fyrir að vera ekki með miða!
Á mánudagsmorgun hélt ég í talsvert þægilegri lestarferð heim sátt og skælbrosandi eftir góða helgi, og þakka ég Sigurrós mikið fyrir. Þetta var klárlega með betri helgum Ítalíuævintýrissins, þó hún hafi ekki verið erfiðleikalaus! Ég verð klárlega að bjóða elsku Sigurrós í heimsókn áður en við yfirgefum elsku Ítalíuna!
Ps. á undraverðan hátt fann hostmamma mín út um hvað ég væri að skrifa... hvernig er ráðgáta
Pss. Ef þú last þetta allt ertu hetja
Psss. Ef þú skrollaðir bara niður á endann ertu fúlmenni og mátt þ.a.l. skammast þín og vinsamlegast byrja a byrjuninni!
![]() |
| Krúttmynd |
Annars sendi ég öllum á Íslandinu mínu góða mínar bestu kveðjur, og líka elsku mömmu og Svandísi og fjölskildu í Philadelfiu!
Ciao tutti!
-Alma Dóra Ríkarðsdóttir
-Alma Dóra Ríkarðsdóttir









Hæ ég er hetja. Þú ert það einnig fyrir að hafa lifað af þetta gríðarmikla lestarævintýri. Gott að þetta blessaðist allt saman og þú hafir ekki endað dauð í lest á leið til Parísar eins og EÓ hafði miklar áhyggjur af að myndi koma fyrir sig í Brussel. Áfram þú!!
ReplyDeleteLestarleiðin á kortinu er alveg eitt það besta og staðreyndin að þú sért að hata þennan kött gleður mig mjög.
Hafðu það gott elskuleg
xx
Elsku elsku elsku Alma Dóra mín kæra litla dúlla......random menn að hjálpa þér villtri í myrkri.....ég fæ hjartaáfall!!! Allt er gott sem endar vel og þú verður sterkari á eftir,,,en farðu varlega og komdu heil heim!!! Hata ketti hvað er það nú, mynni á feitan haltan gamlan og fallegan fresskött sem lifir bara þín vegna! Frábært blogg xxxxx þín mamma:D
ReplyDeleteAAaa vá frábært! Ekkert smá ævintýri! Gaman að heyra smá detailes af hrakföllum þínum haha..
ReplyDeleteGott að þú nýtur þín þarna úti!
Hafðu það gott og heyrumst ! ;*
Kötturinn minn og kettir almennt eru að sjálfsögðu ekki sami hluturinn. Umtalaður yndisfríður á íslandinu góða er að sjálfsögðu alltaf elskaður og dáður mest af öllum. Þessir þarna í Bozen voru bara greinilega ekki nógu miklir karaktegar, sérstaklega ekki sú illa! Takk annars fyrir kommentin, ég er líka mjög glöð að vera enn á lífi hahaha :D:*
ReplyDeleteÞað sem gladdi (og særði) mig mest var það að sjá hversu mikil áhrif Ítalían hefur á þig, eða nánar tiltekið stafsetninguna þína. Hlakka til að fylgjast með þér falla í öllum stafsetningarprófum héðan frá.
ReplyDeleteAnnars get ég LITERALLY ekki beðið eftir næsta Beygluskypedeiti (Jónika hlær enn að frábæru "Við elskum þessar mellur" sögunni þinni!)
Ég treysti því líka að þið stöllurnar hafið dansað niður göturnar í Bozen að öskra: "SHE´S GETTING MARRIED!!!!"
Þú ert sætust og flottust, og ég er hetja fyrir að hafa lesið bloggið þitt. Krefst þess að fá verðlaun þegar þú kemur heim, í formi próteinhristings úr Gulrótinni.
Sincerely,
Professor Snape (Arna)
#minningarúrensku #laufeyóviðeigandi #lestock
Þú veist eflaust hvað ég ætla að fagna þegar ég byrja að skrifa á þetta blessaða blogg. Ég hló og brosti og var samt sem áður í sjokki með þetta varðandi kettina. Ég hélt að allir kettir heimsins nánast væru vinir þínir, þessir "kettir almennt" well..now you know how I feel everyday ahahaha ófétið.
ReplyDeleteÉg hafði annars mjög gaman af lestarsögu þinni, ég hefði verið búin að gráta úr mér allt vit án djóks og hugsandi að þetta myndi verða minn djöfulsins dauðdagi. ÞÚ ert hetja. Mér finnst bara gaman að lesa löng blogg, er fólk almennt að væla yfir því þegar blogg eru löng? Sé marga skiptinema segja þetta, fussumsvei!
Btw, var það lykilatriði að taka það fram að maðurinn hafi verið svartur? djöss racist. Samt gott að allir voru svona nice, ég held alltaf að ókunnugir í útlöndum nauðgi mér sbr. Brussel að kvöldi til.
Slökum samt á með strætómiðana, þetta er bara eins og gamla góða metroið í DK, tala íslensku og reddast, í versta falli þá labba þeir með mann að söludæminu og sýna manni hvernig á að kaupa miða eins og maður sé þroskaheftur heimskur útlendingur.