Classic skiptinemablogg

Það er erfiðast að bíða, en ég er 17 ára þangað til 27. október. Ég heiti Alma Dóra Ríkarðsdóttir og ég er á leiðinni til Ítalíu sem skiptinemi 9. september. Hér getur þú fylgst með. Snilld.

Thursday, February 16, 2012

Þegar Alma fór á Carnevale í Feneyjum!

FENEYJA BLOGG
þá fór ég loksins til Feneyja, eftir skammarlega 5 mán af því að búa aðeins klst í burtu

Systra kærleikur
Hvar á ég að byrja? Get allavega ekki sagt annað en þessi seinasta helgi hafi verið með þeim allra allra bestu, með einhverju yndislegasta fólki sem ég hef kynnst hérna í Ítalíu.


Grímu gleði

Svo við byrjum á byrjuninni þá átti Anne elsku sæta vinkona mín frá Honduras 18 ára afmæli á miðvikudaginn. Á eftir því fylgdu hátíðarhöld sem í rauninni enduðu á sunnudeginum, svona þegar ég hugsa útí það.
Á föstudaginn komu semsagt Hernan, Camilla, Francesco, Gaia og fleiri krakkar til Belluno til að fare festa með okkur, note to self: Of margir spænskumælandi + kjöt fondú - spænskukunnátta = Casino. Á laugardeginum var síðan alvöru afmælisveislan sem endaði síðan í 2 klst. svefni áður en lagt var af stað til Feneyja á fyrsta dag Carnevalsins.


Jack vinur okkar og félagi
Eftir 2 tíma lestarferð komum við til Feneyja í einhvern þann mesta kulda sem ég hef orðið vitni af hér (sbr. frosið vatn í tösku). Á hádegi horfðum við svo á "hið mikilfenglega" flug engilssins, sem markar þá fromlega byrjun Carnevalsins. Þetta var samt alveg fyndið dæmi, þar sem ég hafði búist við að hún myndi renna sér niður á svona 5 sek og ég myndi örugglega missa af því að taka mynd. 

TOPOLINA
Svona 7000 aðrir samtúristar mínir voru greinilega á sama máli þar sem öllum myndavélunum var haldið í biðstöðu allavega 10 min áður en engillinn flaug af stað. Staðreindin var hinsvegar sú að engillinn flaug niður á svona 20 mínútum og ég vorkenndi ekkert smá greyjið konunni sem fór með þetta hlutverk og þurfti að hanga á snúru í brjáluðum vind á meðan brjálaðir túristar tóku myndir undir pilsið hennar. Ef hún fær ekki lungnabólgu eftir þetta þá er það kraftaverk.

kærleikur 

Næst á dagskrá var að finna alla hina skiptinemana sem við ætluðum að hitta í Feneyjum. Það voru að sjálfsögðu mestu fangaðarfundir og mikil gleði ríkti þessa fáu tíma sem við gátum verið saman. Ég myndi deyja úr væmni ef ég ætlaði að lýsa því hvað mér þykir vænt um þessa krakka. Eftir að hafa borðað saman, talað saman á hinum ýmsu tungumálum og leikið okkur á sjálfu San Marco torginu allan daginn í þessum klassísku AFS leikjum fórum við sátt heim. 

kínaaaa

italianoooo
Það gekk hinsvegar ekki hrakfallalaust frekar en fyrri daginn og endaði að sjálfsögðu á allavega einni vitlausri lest og týndu veski. Það fór hinsvegar allt vel og eftir 4 tíma af lestarhrakföllum (sem ég gæti í raun farið að semja heila skáldsögu um) í stað eins komumst við heilar á leiðarenda. 

Sólheimabros
Þá er allavega eitt stórt farið útaf Bucket listanum, að fara á Carnevalið í Feneyjum, og ég er að segja ykkur það, á næsta ári komið þið öll með mér! 


Dúllur
Þetta var alveg yndisleg helgi í alla staði og ég gæti skrifað endalaust um þetta allt saman ef ég hefði minnsta grun um að einhver myndi nenna að lesa það! Lífið gengur svo sinn vanagang og ég er búin að ná alveg ágætis tökum á ítölskunni! Næst á dagskrá er skólaferð til Prag (Prag>Flórens) og skiptivikan í SIKILEY! Sem verður snilld. Annars finnst mér magnað að ég hafi fundið tíma til að skrifa þetta blogg í þessarri viku þar sem það að taka þátt í skiptiviku er PÚL. En samt snilld. 
FLÁ FLÁ FLÁ = ég elska óviðeigandi AFS leiki

Nemó heimþrá gerði engu að síður vart um sig og ég trúi varla uppá XTV að ég hafi ekki getað horft á Morfís, ef það var einhverntíman ástæða til að endurhugsa þessa ferð þá var það það kvöld! (Samt ekki, samt alveg).


Grímu gleði
 Annars sendi ég alla mína ást og söknuð til íslands,
TVB,

Alma Dóra Ríkarðsdóttir

Kveður úr ljúfa lífinu

5 comments:

  1. Hæ litla gull,
    Gaman að lesa að vana jújú, frábært og fallegt og ég fagna því lúmskt að þér sé kalt, nei djók. Ég væri alveg til í þessi ferðalög og þér var saknað á Morfís á Nemó eins og þú veist. Haltu áfram að njóta elsku fantur og skrifa einhverja snilld.

    ReplyDelete
  2. Elska að EÓ er alltaf fyrst að kommenta, lol.

    En jú mikill skemmtilestur, það verður að viðurkennast!
    Þú ert frábær, gott að þú sért að hafa gaman og vera menningarleg. Pant koma með á carnevalið á næsta ári!

    Morfís náttúrulega skandall í alla staði, þín var sárt saknað bæði þar og á Nemó.

    Loveu
    og haltu áfram að vera dugleg að blogga því það er snilld
    xx

    ReplyDelete
  3. Takk fyrir þetta skemmtilega blogg....ferð um Ítaly er on me í náinni framtíð:) ástarkveðja, mamma:)

    ReplyDelete
  4. Frábært að heyra hvað það er gaman hjá þér lil sys! Feneyjar og Carnival - þetta er auðvitað blanda sem bara getur varla klikkað ;) Ég er sko til í að kíkja með til Italy, count me in! ;) þín big sys

    ReplyDelete
  5. æði að kíkja á þig hér og fylgjast með !!! Haltu áfram að njóta þín , dúlla !!
    góða skemmtun og farðu varlega !!
    Lovja
    Magga frænkzzzzz

    ReplyDelete

Til að commenta þarf að velja "anonymous" í Comment as. Allir að commenta!