Classic skiptinemablogg

Það er erfiðast að bíða, en ég er 17 ára þangað til 27. október. Ég heiti Alma Dóra Ríkarðsdóttir og ég er á leiðinni til Ítalíu sem skiptinemi 9. september. Hér getur þú fylgst með. Snilld.

Sunday, April 1, 2012

Prag + Sikiley

Af sökum tímaleysiss og annarrar armæðu hefur það að skrifa þetta blogg aðeins dregist á langinn og óhætt er að segja að frá mörgu sé að segja. Nú er farið að líða á síðari part ferðalagsins og það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Endalaus ferðalög og taumlaus gleði hafa og munu einkenna þessa seinustu mánuði og hver tekur því ekki fagnandi? Ég er svosem yfir höfuð til í allt sem leyfir mér að sleppa degi eða tveimur úr skóla :)


Toppurinn á minni mannlegu tilveru, ÉG ER SAXÓFÓNN


Svo ég byrji á "byrjuninni" þá þræddi ég alla kastala, verslunargötur, jazz klúbba og aðra skemmtistaði í Prag dagana 6. - 10. mars í fylgd hins fagra 5.BL sem er einn uppáhalds bekkurinn minn hérna í Ítalíu. Þrátt fyrir rúma 24 tíma í pinnkulítilli rútu með einhverjum þeim vanhæfasta bílstjóra sem sögur fara af (aðra eins vanþekkingu á reglum og öðru muna menn varla eftir), að hafa týnst oftar en einu sinni í neðanjarðalestum og hin ýmsu óhöpp hef ég sjaldan skemmt mér jafn vel og þessa 5 daga í þessum líka yndislega félagsskap. 


Sætu ítalíu vinir í Prag
Sisi, Praga é bellissima

Það verður samt að viðurkennast að það að fá að fara yfirhöfuð með í ferðina var þvílíkt basl því eins og aðstoðarskólastjórinn sagði þá "nenna skrifstofukonurnar ekki að vinna vinnuna sína". Þetta var einhvert mánaðarlangt ferli sem samanstóð af ófáum ferðum uppá skrifstofu, hinum ýmsu rannsóknum á Tékkneskum lögum, kvarti, kveini og gráti í Davide sem er svo óheppinn að eyða með mér löngum stundum á bókasafninu (þá helst eftir skrifstofuferðir), 200 evrur og að lokum þeim 5 minutum sem tók skrifstofukonuna að hringja í ferðaskrifstofuna og bóka pláss fyrir mig. Það má þó með sanni segja að þetta hafi allt verið vel þess virði enda var ferðin yndisleg í alla staði.


Ó endalausi söknuður

Þegar prinsessan innra með Ölmu fékk útrás
Heimspekilegar samræður, Bob Marley, almenn gleði, menningarlegar upplifanir, yndislegir bekkjarfélagar og kastalar. Lífið er ekki af verri endanum í Prag. 

Husband Davide

Á leið í ævintýraferð


Eftir Prag tók við vika af skóla, svo þriggja daga frí þar sem bekkurinn minn fór líka í stutt ferðalag til Flórens og svo einhver sú yndislegasta vika þessarar skiptinemareynslu hérna í Ítalíu. La settimana di scambio.


Því ég ELSKA eþssi tvö, og litaþemað!

Á vit ævintýranna


La settimana di scambio er einskonar "skiptivika" þar sem maður fær tækifæri til að velja sér aðra borg í ítalíu til að búa í í eina viku. Svoleiðis upplifir maður eitthvað nýtt og það er með öllu óhætt að segja að það sé rosalegur munur á S- og N- Ítalíu.


Siracusa!

N-Ítalía, þar sem ég bý, er þekkt fyrir alla vinnuna og verksmiðjurnar sem þar eru að finna. Þar "verða peningarnir til" og borgirnar eru hreinar og þeim er vel haldið við. Skiptinemar í N-Ítalíu eiga mun auðveldara með að ferðast þar sem allt er í rauninni stutt frá en fjölskyldurnar og fólkið yfir höfuð er mun kaldara og alvarlegra en þeir sem búa í Suðrinu. Íbúarnir eru gjarnan uppnefndir "Polentoni" sem er dregið frá "la polenta" sem er einhver sá frægasti réttur sem kemur frá norðrinu.


Catania!
Í suðrinu kynntist ég hinsvegar allt öðrum heimi. Ég hef aldrei upplifað eins mikla gestristni og frá fyrsta degi leið mér eins og parti af fjölskyldunni. Þetta voru yndislegir dagar og í náinni framtíð vonast ég til að hafa tíma til að velja úr þeim 1100 myndum sem voru teknar þær sem ég svo set á facebook.


Elsku yndislega fjölskyldan mín í Sikiley!

Ég var semsagt í bænum Augusta sem er nálægt Catania, Siracusa og eldfjallinu Etna. Fengum við þar að sjá kirkjurnar, bæjina, grísku og rómversku minjarnar og auðvitað gestreisnina í öllu sínu veldi. Hvert sem við komum var sól í heiði og ekkert nema endalaust gott viðmót og forvini frá hverjum sem við hittum. Þetta var yndisleg reynsla og það var líka ekkert smá erfitt að þurfa að kveðja í lokinn! Sérstaklega systur mínar tvær sem voru yndislegar. Sú litla, Chiara sem er 9 ára spurði pabba sinn mjög einlægt hvort ég mætti búa hjá þeim að eilífu. Ekkert smá sæt. Svo bíð ég bara spennt eftir sumrinu þegar ég get heimsótt þau aftur og farið aftur að "synda" í sjónum.


Ó elsku Catania 

Gott dæmi um það hvernig "Il tempo vola".


Meraviglia

Ps. 50 mosítóbit fundin hingað til, 25 á hægri fæti, hversu sæt hlít ég að vera?

Þessi er svosem alveg sæt

Ó elsku besta

Dúlló
 Það er samt í alvörunni rosalegt hvað tíminn líður hratt. Nú taka  við 3 dagar af skóla og svo er komið páskafrí. Það hyggjumst við Anne vinkona mín frá Honduras nota til að ferðast eitthvað og hafa það kósý. Eftir páska eru svo 2 dagar af skóla og svo fer ég aftur til Bolzano til að að taka þátt í svokallaðri "mini - skiptiviku" sem er eiginlega bara löng helgi þar sem ég bý hjá annarri fjölskyldu í Bolzano. Þá verður kominn miður apríl! Þá tekur við mánuður af skóla og svo er komið sumarfrí, sem þýðir lokacamp, vonandi Sikileyjarfrí og meiri ferðalög.

Gleði og fögnuður

Þessi er líka í uppáhaldi 

Hvað varðar tölfræðina þá var ég búin með 6 mánuði þann 9. mars, þá átti ég líka 4 mánuði eftir. Þann 26. hafði ég verið 200 daga í Ítalíu og þann 30. átti ég 100 daga eftir!
Já tíminn flýgur og já ég hef of mikinn tíma í skólanum til að reikna þetta út!


Afhverju er ekki lífið alltaf svona yndislegt?

ahahahaha

Í ævintýraför
ALLTAF nóg að bíta og brenna

Og international
Með gleði í hjarta og bros á vör sendi ég bestu kveðjur til allra íslendinganna minna sem ég sakna svo mikið. Þá sérstaklega til Sævars sem var að fermast og ég trúi ekki að ég hafi misst af því! Hann hefur þó verið flottastur eins og alltaf, öðru trúi ég ekki ;)

Allora, ci vediamo a presto! Alla prossima!
Alma Dóra Ríkarðsdóttir


Ps. Þetta video drepur mig




Meiri gleði:

http://www.youtube.com/watch?v=ySpi2C5AnnU


3 comments:

  1. Frábært að fá fréttir og fallegar myndir:) Gaman hvað gengur vel, ástarkveðja mamma;)

    ReplyDelete
  2. Gaman að heyra frá þer, bestu kveðjur Grjetar, Aldís og Halldóra.

    ReplyDelete
  3. Skemmtilegt blog Alma mín, fullt í gangi hjá þér. Æðislegt að lesa :D

    ReplyDelete

Til að commenta þarf að velja "anonymous" í Comment as. Allir að commenta!