Núna er komið að því að pakka niður þessum yndislegu 10 mánuðum í 23 kg ferðatösku (+ 3x20 kg pakka sem ég er búin að senda heim) og snúa aftur. Og ég mun gera það með kökk í hálsinum og söknuð í hjartanu. Tíminn hefur gjörsamlega flogið og ég er búin að eiga eitthvað það frábærasta en líka erfiðasta ár lífs míns hérna í Belluno. Ég hlakka samt líka til að koma heim og knúsa alla.
Hérna eru 2 videoblogg, annað sem ég gerði kvöldið áður en ég kom út og hitt frá því í kvöld, seinasta kvöldinu í Belluno.
Skiptinemaár er ekki bara ár í lífi þínu heldur nýtt líf í einu ári (vá, þetta hljómar betur á hvaða tungumáli sem er). Enjoy.
Takk fyrir mig
Baci e abbracci!
Alma Dóra Ríkarðsdóttir
Ítalía mun vera tómleg án þín EN þau mega bara fokka sér. Nú þarf ég að fá þig heim. Hlakka svo óendanlega til að sjá þig gullið mitt!
ReplyDeleteKv. Team Snape aka Arna