Kaldhæðnir: Hlaupið fyrir lífi ykkar ...þetta blogg verður væmið og rómantískt...
Ég hélt alltaf að mikilvægari parturinn af þessarri skiptinema reynslu, allavega minni skiptinema reynslu, væru allir fallegu staðirnir sem ég hef fengið að heimsækja og allir yndislega skemmtilegu hlutirnir sem ég hef fengið að upplifa, en ég verð að viðurkenna að mikilvægi fjölskyldunnar er búið að aukast til muna eftir að ég skipti um fjölskyldu fyrir rúmum mánuði.
 |
| Bræður mínir tveir, röndótt þema |
 |
| Elsku Luisa í Bologna |
Nýja fjölskyldan mín er yndisleg! Þau eru yndislega fyndin og æðisleg og búa bókstaflega á dómkirkjutorginu sem spillir ekki fyrir (sbr. steig ekki upp í bíl fyrstu 3 vikurnar). Mamman og pabbinn eru alveg eins og svart og hvítt. Hann er frekar rólegur og kaldhæðinn og hún opin og mjööööög aktív. Svo eiga þau tvo stráka sem eru líka eins ólíkir og þau, sá yngri alveg eins og mamman og sá eldri alveg eins og pabbinn. Eldri strákurinn er einu ári eldri en ég og er í háskóla í Písa, sem honum er borgað fyrir að fara í því hann er svo klár (haaaalló faðir barnanna minna). Litli bróðir minn (miooo fratelliiinooo) er alveg frábær.... það hefur semsagt vandræðalega oft brotist út vatnsstríð og aðrar styrjaldir innan veggja Piazza Duomo 11 á þessum fáu vikum...
 |
| Þessi mynd lætur mig hlægja ... |
Hinsvegar er allt ágætt að frétta úr ferðalagapakkanum. Þar ber helst að nefna Bolzano helgina þar sem ég eignaðist enn eina yndislegu ítölsku fjölskylduna (mun vera sú sjötta i röðinni). Þessi tilheyrir þýska parti Ítalíu, talar þrjú tungumál innan heimilisins, stundar yoga, hlustar á One Republic og styður greenpeace. Ég var þar eina helgi og pabbinn hóf engu að síður yfir mér "þú verður að passa þig" og "þegar ég var í löggunni" ræðuna áður en farið var að skandalisera laugardagskvöldið, og mamman tók alltaf fyrst hópmynd og súmmaði svo á mig og tók aðra mynd eins og mömmur gera (sbr. mynd fyrir neðan ahaha ég dey). Eða með öðrum orðum þá voru þau yndisleg. Þetta var líka yndisleg helgi í yndislegum félagskap AFS krakkanna.
 |
| Hópmynd |
 |
| Hópmynd + Mömmusúmm |
 |
| Bolzano fjölskyldan mín |
 |
| Belluno chicks |
AFS selja sig dýrar en innistæða er fyrir hvað varðar frumleika. Það þýðir að í raun eru allar ferðir og "camp"(eigum við að setja þetta í fleirtölu, "cömp"? Nei, hljómar ekki vel, shiiit) eru skipulagðar eins. Þá er ég að tala um ca. 20% velkomuhátíð og kannski svona 30% tími með fjölskyldunni/"camp" félögum, góð 10% menningarlegar upplifanir og svo i það minnsta 40% hið margrómaða TALENTSHOW. Ég veit ekki hvað ég hef orðið vitni að mörgum misjafnlega vel heppnuðum talentshow... Bolzano talentshowið mun hinsvegar birtast í sögubókum barnanna ykkar. Ég er að segja ykkur það, þetta var eitthvað mesta snilldar kvöld sem ég hef upplifað. Það var ekkert planað, hellingur af hugmyndum, ennþá meiri vilji, þjóðverji sem dansaði salsa með vinkonu minni frá Honduras (af hans frumkvæði!), það var tailenskur hópdans, macarena, spunaleikur, tangó, saxófónleikur, söngur og ég veit ekki hvað og hvað. Svo var tekið stórt alsherjar "allir dansa kónga" með allavega hálfum sal áhorfenda sem tóku þátt og þar á meðal borgarstjórinn sem kom að horfa á.
 |
| Elsku Intercultura <3 |
 |
| Leikir og almenn gleði |
 |
| Þýski fór á kostum |
Það er vandræðalegt hvað sólheimabrosið birtist sjálfkrafa bara við að hugsa um þessa helgi...
 |
| Tailenskir hópdansar heilla |
 |
| Bozen börnin |
 |
| Undirbúningur |
Fyrir utan þennan unað var líka skellt í flashmob í miðbænum, útsýnisferðir um Sud-Tyrol, ferð á discoteca og auðvitað var áreytt hina ýmsu menntaskóla bæjarins með mjög klassískum AFS leikjum. Þar var greindarvísitala ítala jöfnuð við jörðu þar sem flestir nemendur giskuðu á að ég kæmi frá Rússlandi eftir að hafa fengið þær upplýsingar að ég bjyggi í norrænu landi þar sem stærsta borgin hefði ca. 200.000 íbúa... er til borg í Rússlandi með 200.000 íbúa?
 |
| AFS elskar Funcky chicken |
 |
| Flashmob in making |
Flashmob videoið: http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=QG1MlprGf3U#!
Svo ferðast ég náttúrulega ekki án lestarhamfara af einhverri sort sem í þessu tilfelli lýsti sér í tveggja tíma bið í Trento þar sem lestin kom að palli 1g en ekki 1... helv... TrenItalia.
 |
| Elsku Bolzano kisi |
Eftir þessa yndislegu helgi var svo komið heim í ljúfa lífið, eða kannski ekki alveg beina leið þar sem mér var tilkynnt á sunnudeginum að ég yrði sótt til að skipta um fjölskyldu daginn eftir... Það gekk ágætlega smooth fyrir sig og ég er búin að fara og heimsækja gömlu fjölskylduna og allt er bara gott okkar á milli, engin vandamál eða leiðindi, er ekki bara prýðilegt að eiga fleiri en eina fjölskyldu?
 |
| Sæti voffinn minn |
Annars verður að viðurkennast að nyja fjölskyldan mín er talsvert duglegri að ferðast og eru við búin að vera smá "in giro" þessar vikur. Eina helgina fórum við i menningarferð að skoða kastala og rómantíska kirkjugarða (ítalski pabbi minn er fyndinn og yndislegur, en líka alveg yndislega spes og fílar sorglega list og rómantíska kirkjugarða... ahhaha það eru ekki til viðeigandi orð, en kaldhæðnisleg skot voru ófá í þessarri bílferð).
 |
| Rómó |
 |
| Þar sem líf og dauði sameinast (hlæ yfir lýsingum áhugamannsins) |
 |
| Menning |
 |
| La mamma e la zia |
 |
| Draumar og kastalar í Bassano |
Svo fórum við mamman til Bologna tvær saman, ekki slæmt að vera prinsessa mömmunnar sem á bara tvo stráka ;)
 |
| Ef ég væri graffari... |
 |
| Alma boðin velkomin í Bologna |
Í dag var svo haldið til Verona að hitta eldri bróður minn og gera þar létt innkaup!
 |
| + Francesco |
 |
| Verooona |
 |
| + Filippo + þreytuþema |
 |
| Luiiisaaa |
Hvað varðar önnur skemmtilegheit,
Páskaeggið mitt er komið í hús... bara rétt rúmlega mánuði eftir páska!
Það eru bara tæpir tveir mánuðir í heimferð, miðarnir eru komnir í hús, sem og létt tilvistarkreppa í bland við heimþrá og aðrar blendnar tilfiningar...
Sumarfríið er allt í skipulagningu í augnablikinu, nú lítur allt út fyrir að því verði eitt í Róm og Silkiley, lokacamp í Trento og jafnvel eitthvað á ströndinni og fleiri lítil ferðalög, non vedo l´ora! -Samt ekki.
 |
| Fyrsti í bloggi |
Ég sting uppá un applauso í tilefni dugnaðar míns sem fer dvínandi í garð þess að skrifa blogg. Næsta verður video-blogg, ég lofa...
 |
| Öðru bloggsessioni lokið... Buona notte, sogni d´oro frá elsku Gúra |
Vegsemd, virðing og kveðjur frá Ítalíu,
Alma Dóra Ríkarðsdóttir
Ó hvað þetta var ljúft blogg elsku besta! Það verður gaman að fá þig heim.
ReplyDeleteVæri mjööööög mikið til í þessi ferðalög þín, þetta hljómar allt einum of spennandi og rómó, þegar þú ferð í sumarferð til Rómar VERÐURÐU að hafa það sumarlegt og mótórhjólalegt eins og Hilary Duff, helst að herma eftir myndinni algjörlega, treysti á þig.
Ég pant koma næst í rómantíska kaldhæðnislega ferð í kirkjugarði, pervatískur áhugi á kirkjugörðunum hérna megin. Býðst til að taka ítalska pabba þinn í Hólavallakirkjugarð niðri í bæ ef hann kemur til landsins, íslenskur og rómantískur með JóniSig og fleirum ásamt grafhýsi.
Love
Gaman að sjá þetta skemmtilega blogg frá þér:) Æðislegt hvað gengur vel hjá nýju hostfammelíunni, bara flottur líka eldri sonurinn, greinilega frábært fólk:) Teljum dagana í að þú komir heim á klakann sem er óðar að bráðna í sumarblíðunni:) Kveðja frá mömmu sem elskar þig alltaf mest:)
ReplyDelete